Herdís Birna fæddist 18. maí 2004 kl. 03:02 í Reykjavík.
Þegar hún fæddist var hún 3050 grömm og 50 cm, en hún var líka soldið að flýta sér og kom á undan áætlun.
Arna Katrín fæddist 12.júní 2008 kl.16:20 í Reykjavík. Hún var 3435 gr og 53 cm og vildi vera alveg eins og stóra systir og kom því líka á undan áætlun. Henni lá líka ansi mikið á í heiminn og má þakka fyrir að mamma og pabbi komust á spítalann í tæka tíð.
Mamma okkar heitir Kristín Þórðardóttir og pabbi heitir Viggó Arnar Jónsson.

ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir.
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt,
ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég tala við þig,
þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,
ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera mistök
án þess að mér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið,
elskaðu mig fyrir að reyna .
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera,
stundum skil ég ekki það sem þú segir.
Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég geri.


20. apríl-20. maí
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
TVÍBURINN
21. maí - 21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.


